Anna Þóra:
Locatify og TorfHunt eru skemmtileg forrit þegar búið er að ná tökum á því hvernig þau virka. Forritin henta vel í skólastarf á öllum skólastigum, því hægt er að setja upp námsmiðaða ratleiki og engar takmarkanir eru á því hvar þeir eru staðsettir. Börn í leikskóla og yngstu börn grunnskóla þyrftu aðstoð þeirra sem geta lesið, en fyrir þau væri hægt hægt að hafa þrautir eða einfaldar spurningar í ratleikjunum. Hópastarfið gekk vel fyrir sig og við höfðum mjög gaman af samstarfinu.

Elva:
Þetta var að mínu mati örlítið flókið í framkvæmd og átti ég erfitt með að ná taki á Locatify forritinu en það gekk allt að lokum. Það að setja inn stöðvar, spurningar, svör og ná að tengja á milli þeirra vafðist fyrir mér. Það hafðist þó að lokum og gekk verkefnið vel. Hópavinnan gekk mjög vel fyrir sig og kom það bersýnilega í ljós að hver og einn hefur sínar sterku hliðar.
Hugmyndin á bak við TurfHunt er góð og að mínu mati hentar þessi útgáfa betur eldri börnum, þar sem þau eru betri í að lesa, skilja spurningar og átta sig á svörunum við þeim. Aftur á móti þyrfti að vera hægt að búa til ratleik fyrir yngri börnin, þar sem þau leysa þrautirnar með líkamanum, t.d. að hoppa á öðrum fæti eða para saman dýr og afkvæmi þeirra. Þetta er erfitt að framkvæma nema vera með tæki til að taka myndirnar og erfitt er að koma myndunum á ákveðin stað til að fá "rétt svar" og fá leyfi til að halda áfram.

Halldóra:
Það tók mig örlita stund að átta mig á hvernig Locatify virkaði, en eftir að það tókst þá þótti mér vinnan skemmtileg. Mér fannst gaman að velja stöðvar þar sem spurningarnar voru bornar fram. Þetta var skemmtilegt hópverkefni þar sem ýmsar vangaveltur komu fram með val á stöðvum og spurningum. Það var mjög góð samvinna í hópnum.

Ragnheiður:
Hugmyndin á bakvið TurfHunt er mjög sniðug. Það er hægt að hanna ratleik og stjórna því hversu erfiður eða umfangsmikill hann er. Þetta er skemmtileg leið til að kynna t.d. höfuðborgina eða landsbyggðina fyrir börnum. Það tók smá tíma að átta sig á hvernig síðan væri uppbyggð en þegar við komust í gírinn þá gekk vel að hana leikinn. Það nýttist okkur vel að hafa þetta sem hópverkefni því við fundum að styrkir okkar lágu á mismunandi stöðum sem við gátum nýtt okkur í þessari hönnun.