Tilgangurinn með ratleiknum er að kynnast miðbæ Reykjavíkur betur.
Í ratleiknum eru fimm stöðvar og til að komast á milli þeirra þurfa þátttakendur að svara fimm ólíkum spurningum sem tengjast miðbænum á einn eða annan hátt. Þessar spurningar eru einfaldar staðreyndir sem tengjast stöðunum sem þær leiða að.
Til að spila leikinn þarf að notast við nettengjanlegt tæki (3G eða 4G), hvort sem það er snjallsími eða spjaldtölva. Auk þess þarf að vera með íslenska appið TurfHunt í tækinu sem notast á við á meðan á leiknum stendur.
Leikurinn ber nafnið Miðbærinn og er að finna eins og fyrr segir á íslenska appinu TurfHunt.
Til að fá nánari upplýsingar um leikinn, gerð hans og okkar viðhorf til forritsins, þá eru betri upplýsingar að finna undir Ratleikurinn, þar undir eru flipar þar sem hægt er að sjá nánar hverja stöð fyrir sig. Þar að auki er hægt að finna okkar skoðanir undir flipanum Umsagnir.