Ratleikurinn:
Ratleikurinn samanstendur af hugmyndum frá öllum hópmeðlimum. Hann er búinn til á vef Locatify og er sjáanlegur í íslensku appi sem nefnist TurfHunt. Við völdum miðbæ Reykjavíkur vegna þess að þar er að finna marga áhugaverða staði sem gaman er að spyrja um. Staðirnir sem urðu fyrir valinu voru, Hallgrímskirkja, Litla Jólabúðin, Stjórnarráðið, Tjörnin og Austurvöllur. Þetta eru allt áhugaverðir staðir með sögu og ekki langt að labba á milli þeirra.
Ratleikurinn er byggður upp á þann hátt að þegar búið er að svara spurningu við Hallgrímskirkju, sem er upphafsreitur í leiknum, á að halda áfram og finna næstu stöð. Vísbending poppar upp á milli sem leiðir þátttakendur að næstu stöð. Þannig leiðir leikurinn þátttakendur í gegnum fimm stöðvar.
Það gekk erfiðlega að fá ratleikinn til að virka og tókst það ekki fyrr en í þriðju tilraun hjá okkur. Vandamálið fólst fyrst og fremst í því að fá stöðvarnar til að birtast hver á eftir annarri. Það tókst þó loksins á endanum og fór Anna Þóra niður í bæ og prófaði ratleikinn fyrir hönd hópsins. Það gekk mjög vel og virkaði allt sem skyldi. Spurningar og vísbendingar komu fram þar sem þær áttu að gera.
Fyrst bjuggum við til ratleik sem okkur fannst svo ekki henta fyrir verkefnið, þannig að við bjuggum til nýjan sem hentaði betur. Þeim leik var gefið nafnið prufa því jú eins og nafnið segir til um, átti þessi að vera tilraunadýr hjá okkur. Hann aftur á móti heppnaðist vel að öllu leyti nema við gátum ekki birt hann á réttan hátt og við gáum ekki breytt nafni hans. Því var tekin sameiginleg ákvörðun um að henda honum út og búa til nýjan. Því má segja að við höfum fengið okkar skerf af ratleikjagerð að þessu sinni.
Við hugsuðum okkur ratleikinn sem kennsluefni fyrir börn á miðstigi og elsta stigi grunnskólans og því eru spurningarnar í samræmi við það.
Hér sést leiðin sem ratleikurinn nær til. Eftir á að hyggja hefði verið sniðugt að setja stöð á milli Hallgrímskirkju og Litlu Jólabúðarinnar.